Helstu eiginleikar
Verkefnaskrá og yfirlit
Miðlægt aðgengi og yfirsýn á lykilverkefni fyrirtækis, upplýsingar um stöðu, framvindu og yfirsýn á helstu mælikvarða.
Vinnusvæði verkefnastjóra
Verkefnastjórar fá yfirsýn á sín verkefni og verkefnatillögur í vinnslu. Umsjónarkerfi fyrir stöðuskýrslur og framvindu verkefna.
Mat og samþykktarferli
Skráning og umsjón með gerð verkefnistillagna, skilgreiningu verkefna, mat og samþykkt.
Tímaskráning/verkbókhald
Tímaskráningar- og verkbókhaldskerfi. Hentar vel þegar krafan er um kostnaðarbókhald verkefna.
Sjálfvirk myndun vinnusvæða
Vinnusvæði eru stofnuð með formlegum hætti og sjálfvirkt við samþykkt verkefnis og út frá skilgreiningu verkefna.
Áætlunargerð
Skilgreining á verkliðum og umfangi. Möguleiki á að fá yfirsýn yfir auðlindaáætlun verkefnisins.